Verðskrá
Verð fyrir vefsíðu með allt að 5 undirsíðum er 49.900 kr. + vsk. Innifalin er grafísk vinna við header (ekki þó flash)og miðað er við ca 2 myndir á síðu eða um 10 samtals. Myndagallerý með fleiri en 9 myndum kostar kr. 3500 fyrir hverjar 10 myndir.
Síður með 6-15 undirsíðum kosta 69.900. kr. + vsk.
Síður með 16-25 undirsíðum kosta 89.900. kr. + vsk.
Einnig er hægt að fá tilboð frá okkur í viðameiri veflausnir en þá þarf að fylgja nokkuð nákvæm lýsing á útliti, áætlaðan síðufjölda og öðru sem skiptir máli.
Innifalið í verðinu á öllum vefsíðum frá okkur: Ýmsir áhugaverðir viðbótarmöguleikar eftir því sem þeir henta þinni síðu t.d. skoðanakannanir, bloggmöguleikar, Youtube tenglar, fyrirspurnarform, mynda slideshow, facebook tengingar, leitargluggar og að sjálfsögðu leitarvélabestun svo eitthvað sé nefnt. Sjá nánar viðbótarmöguleika hér.
Hjá okkur er enginn falinn kostnaður. Hinsvegar þarf að gæta þess að verðin okkar innihalda aðeins vefsíðugerðina sjálfa, þ.e. vinnuna, ekki kostnað við að kaupa lén hjá isnic eða hýsingu. Íslenskt lén kostar 6.982 kr. á ári og er rukkað eitt ár í senn hjá isnic. Vefhýsing er á furðu misjöfnu verði en sá aðili sem við mælum með 1984.is rukkar aðeins 806 kr. á mánuði fyrir 5 Gb vef sem er með því allra hagstæðasta sem er í boði hér á landi. Við aðstoðum við kaup á léni sé þess óskað og sjáum um samskipti við hýsingaraðila.
Uppfærslur:
Þegar við afhendum síðuna ásamt leiðbeiningum um hvernig á að uppfæra síðuna, þá er verki okkar formlega lokið. Margir velja hinsvegar að láta okkur um að sjá um reglulegar uppfærslur ss. að setja inn nýjar myndir, nýjar greinar, breyta efnisflokkum, nýjar fréttir ofl. þessháttar.
Stök uppfærsla mv. 1 tíma í vinnu 3.900 kr. + vsk
Mánaðarsamningur mv. hámark 1 tíma í vinnu á viku 11.500 kr. + vsk
1.árs þjónustusamningur mv. hámark 1 tíma í vinnu á viku 89.000 kr. + vsk
Þemahönnun:
Stundum hafa viðskiptavinir okkar sjálfir sett upp WordPress síður en vilja að við hönnum fyrir þá nýtt útlitsþema. Við hönnum útlitsþema fyrir 19.900 kr. + vsk