Viðhald vefsíðu

.
Það er yfirleitt ekki nóg að hanna síðu og koma henni á netið. Við viljum að vefsíðan okkar sé lifandi og henni sé því haldið við og hún uppfærð eftir þörfum. Vefsíða er í eðli sínu aldrei fullkláruð. Það þarf reglulega og jafnvel stöðugt að huga að útliti og sérstaklega þó innihaldinu.
Um leið og við afhendum síðuna þá afhendum við pdf skjal þar sem helstu aðgerðir á wordpress stjórnborðinu eru útskýrðar, svosem hvernig á að setja inn nýja pósta, nýjar síður, bæta og breyta texta og myndum. Viðskiptavinurinn ætti því að geta séð um allar minniháttar uppfærslur sjálfur. Margir kjósa þó að láta okkur alfarið um þetta og gerum við það með glöðu geði gegn vægu gjaldi.
Sjá nánar ótrúlega hagstæð uppfærslutilboð okkar í verðskránni.