ÚTLITSÞEMA

Get the Flash Player to see the slideshow.

Myndvinnsla og Flash

Við tökum að okkur að laga, breyta og bæta myndir með þar til gerðum forritum.  Myndir á vefsíðum eru sérlega mikilvægar.  En margt þarf að hafa í huga.  Í fyrsta lagi þurfa myndirnar að henta vefsíðunni og viðfangsefninu.  Oftar en ekki er hægt að gera myndirnar betri með því að laga þær t.d. liti og skerpu þannig að þær líti betur út á vefnum.   Þá þarf alltaf að gæta þess að þær séu ekki of stórar í „bætum“ talið því allar stórar myndir hægja á vefsíðunni.   Þetta skiptir einnig máli varðandi leitarvélabestun því Google er farið að taka tillit til þess hve  stórar síðurnar eru og er ekki hrifið af þungum myndum og vefsíðum.

Þegar við hönnum vefsíður og viðskiptavinur sendir okkur myndir til að nota þá bætum við þær ef hægt er að kostnaðarlausu upp að vissu marki.  Nær undantekningalaust er hægt að minnka myndir í bætum talið án þess að það komi niður á gæðum þeirra. Ef viðskiptavinur óskar eftir meiriháttar lagfæringum eða breytingum á mjög mörgum myndum sem eiga að fara á vefinn þá áætlum við vinnu og kostnað við það og látum viðskiptavin vita.

Einnig tökum við að okkur að lagfæra myndir sem alls ekki eiga að fara á netið og gerum tilboð í þannig verkefni.

Við bjóðum upp á einfaldari Flash vinnslu fyrir vefinn þinn.  Flash þarf þó ávallt að nota mjög gætilega því það hefur bæði kosti en því miður ókosti sem vefsíðueigendur átta sig ekki alltaf á.  Kostirnir eru augljósir, hægt er að búa til mjög skemmtilegar hreyfimyndir fyrir vefinn og gera hann á vissan hátt lifandi.  Hættan er  fyrst og fremst sú að Flash er oftar en ekki ofnotað og of mikið Flash á vefsíðum getur hreinlega verið pirrandi fyrir notendur auk þess sem það er tímafrekt í niðurhali fyrir hægari tengingar.  Þá er Flash ekki leitarvélarvænt, m.ö.o. leitarvélar skilja ekki Flash skrár.  Sumir vefir eru að miklu leiti byggðir upp með Flash.  Dæmi um slíkan vef er  AcencyNet. (http://www NULL.agencynet NULL.com/) Slíkir vefir eru gríðarlega flóknir í hönnun og aðeins á sviði færustu Flash sérfræðinga.

GULLNET.IS

Veldu traustan aðila til að sjá um þína vefsíðu. Gullnet.is - þar sem gæði, góð þjónusta og gott verð fara saman.