SEO – Leitarvélabestun

.
Það eru dæmi um það að erlend stórfyrirtæki hafi varið mjög miklum fjármunum í vefhönnun en síðan hefur komið í ljós að vefsíðurnar þeirra hafa varla fundist á netinu. Þetta hefur kallað á aðgerðir og að sjálfsögðu ný tækifæri. Nú er orðin til ný atvinnugrein sem hefur leitarvélabestun (SEO search engine omptimization) að markmiði.
Því miður höfum við séð fyrirtæki spila á fákunnáttu almennings og selja einfalda þjónustu varðandi leitarvélabestun á óhóflegu verði. Dæmi eru um að fyrirtæki hér á landi séu að taka 250.000 krónur fyrir þjónustu sem við veitum ókeypis fyrir allar vefsíður sem við hönnum og er útlistuð hér neðar á síðunni. Hér á það svo sannarlega við: Varist sjálfskipaða SEO sérfræðinga sem rukka fáránlegar upphæðir!
Gullnet.is sér til þess að vefsíður sem fyrirtækið hannar séu skráðar á öllum helstu leitarvélum. Að auki eru fjölmörg atriði sem skipta máli þegar kemur að leitarvélabestun- það á svo sannarlega við hér að margt smátt gerir eitt stórt. Það hjálpar vissulega til að leitarvélar elska wordpress og við sjáum um að aðrar stillingar séu í lagi svo leitarvélar finni síðuna þína. Þess ber þó alltaf að gæta að það getur tekið marga mánuði þar til síðan fer að sjást framarlega á leitarvélum.
Mikilvæg atriði í leitarvélabestun sem Gullnet.is tekur ALLTAF tillit til í vefsíðugerð:
- Vefsíðan þarf að vera hönnuð frá grunni með leitarvélar í huga. Vefsíður sem byggjast að miklu leiti á Flash tækninni eru t.d. alls ekki leitarvélavænar þó þær séu vissulega aðlaðandi útlitslega. Einnig þarf að huga að hnöppum, betra er að hafa texta heldur en myndræna hnappa því leitarvélar skilja ekki myndir.
- Gæta þess að vefsíðan sé skráð á allar helstu leitarvélar og að síðan sé stillt þannig að hún leyfi leitarvélaróbotum að skoða hana. Það er nokkuð algengt að þetta atriði fari framhjá vefsíðuhönnuðum
- Huga sérstaklega að Google stillingum, það fyrirtæki er með um 60 % markaðshlutdeild í leitarvélageiranum.
- Hafa lykilorð (keywords) í h1 fyrirsögnum, lýsingu (description) og helst í nafni léns ef hægt er. Láta mikilvægustu orðin koma fyrir á forsíðu og helst feitletruð og eins oft og hægt er án þess að það komi niður á texta síðunnar.
- Hafa metatags, title, description og keywords vel skilgreind og ekki ögra reglum Google varðandi hámarkslengd.
- Hafa sitemap á vefsíðunni og gæta þess að uppfæra það í hvert sinn sem síðunni er breytt eða efni bætt á hana.
- Hafa RSS feed (sjá kassa í footer neðst á þessari síðu)
- Velja áreiðanlegan hýsingaraðila. Þeir hýsingaraðilar sem vista t.d. klámsíður eru á svörtum lista hjá flestum leitarvélum sem bitnar á öðrum síðum sem þeir vista.
- Borga hýsingu helst nokkur ár fram í tímann ef hægt er. Síða fær mínusstig ef minna en ár er eftir af hýsingartíma.
- Tíminn vinnur með vefsíðunni. Því lengur sem hún er uppi, því sterkari verður hún í leitarvélum. það tekur alltaf nokkurn tíma, algengt um 6 mánuði að ná ásættanlegu skori í leitarvélum.
- Gæta vel að “file size”, stórar og þungar síður í niðurhali eru ekki vinsælar hjá Google og hefur þetta atriði verið að fá meira vægi nú undanfarið.
- Því meiri texti sem er á síðunni, því meiri líkur eru á að hún skori hátt hjá leitarvélum með tímanum.
- Uppfæra síðuna reglulega. Leitarvélar skynja hvort síðan er uppfærð eða ekki.
- Setja Alt texta á myndir. Leitarvélar skilja ekki myndaskrár en það hjálpar til að hengja Alt textann á myndirnar.
- Það hjálpar til að hafa Youtube video á síðunni. Google á Youtube fyrirtækið!
- Gæta þess að ekki séu brotnir linkar á síðunni. Athuga reglulega hvort allir linkar virki, bæði þeir sem eru innan vefsíðunnar og sérstaklega þó þeir sem linka á aðrar síður.
- Linka á hátt skrifaðar vefsíður (high ranking) og reyna að fá slíkar þá sem sjá um þær vefsíður til að linka á okkar vefsíðu.
- Linkar frá vefsíðum með .gov eða .edu endingum hjálpa til en þetta eru ríkis- eða menntastofnanir í Bandaríkjunum og á því sérstaklega við ef síðan er á ensku.
- Muna að leitarvélum er nánast alveg sama um útlit vefsíðunnar. Það er innihaldið sem skiptir máli!
- ALDREI skal ögra reglum sem Google setur eða reyna að “svína” með einhverjum hætti á leitarvélunum. Algengt er t.d. að linkar séu keyptir en Google og fleiri leitarvélar eru farnar að sjá við þessu með þeim afleiðingum að vefsíðum er hent útaf leitarvélum. Þegar það gerist er oft fátt til bjargar annað en að kaupa annað lén en það tekur þá aftur langan tíma að koma því upp í leitarvélum.