is eða com lén ?
Það þarf að ákveða hvort vefsíðan á að vera með .is eða .com endingu. Í flestum tilfellum velja íslensk fyrirtæki .is endingu en þau sem eru mikið í viðskiptum við útlönd velja gjarnan .com endingu. Við mælum ekki með .com endingu fyrir Íslensk fyrirtæki sem eingöngu sinnir viðskiptavinum á Íslandi. Það er einfaldlega þægilegra upp á markaðssetningu að gera og hefur með ímynd fyrirtækisins að gera. Ef viðskiptavinirnir eru erlendis. T.d. erlendir ferðamenn þá getur verið betra að hafa .com endingu.
Þetta hefur einnig áhrif á hýsingarmöguleika, .is síða er alltaf vistuð á íslenskum server af íslensku fyrirtæki og að auki þarf að greiða um 7900 kr. á ári fyrir lénið. Erlendir aðilar vista yfirleitt .com síður. Það er í langflestum tilfellum ódýrara og þjónustan síður en svo verri. Oft býður erlendur hýsingaraðili lénið sjálft frítt en greitt er mánaðargjald fyrir hýsinguna, gjarnan á bilinu 5-7$.
Reyndar eru fleiri möguleikar varðandi endingar á léni. .net er oft notað af fyrirtækjum sem starfa eingöngu á netinu. Þá er .biz orðið nokkuð algengt, einnig .org en það nota gjarnan stórar stofnanir, sérstaklega í Bandaríkjunum. Almennt má þó segja að ef .com er laust þá er best að nota það ef sú leið er farin að nota ekki .is endingu.