Hýsingarmöguleikar
Allir þurfa þak yfir höfuðið, líka vefsíðan okkar! Síður með .is endingu eru í langflestum tilfellum vistaðar á Íslandi. Allmörg íslensk fyrirtæki bjóða upp á hýsingu og verðin eru einnig mjög misjöfn. Sá aðili sem við skiptum við og getum hiklaust mælt með er 1984.is þar fæst 5 gb hýsing fyrir aðeins 806 kr. á mánuði sem er það allra ódýrasta sem í boði er hér á landi. Algengt verð er á bilinu 1500-2000 kr. á mánuði fyrir 100-500 mb vefi eða töluvert dýrara og miklu minna gagnamagn í boði en hjá 1984.is
Aðrar síður t.d. .com síður er hægt að vista bæði erlendis og innanlands t.d. hjá 1984.is. Það hefur ótvíræða kosti að vista síður hér á landi þó .com eða önnur ending eins og .org , biz osvfrv. Af erlendum aðilum getum við mælt með justhost.com en þar er hýsing ódýr og þjónustan til fyrirmyndar.
Ef viðskiptavinur vill velja aðra hýsingaraðila en við mælum með þá þarf að vera tryggt að sá aðili uppfylli þær kröfur sem gert er vegna hýsingar á wordpress síðum en þær varða aðallega að nýjustu útgáfur af php serverum séu til staðar. Langflestir hýsingaraðilar hafa þetta í lagi en þó ekki allir.