Hversvegna Gullnet ?
- Við veitum metnaðarfulla þjónustu og erum ekki ánægðir fyrr en viðskiptavinurinn er það einnig.
- Við erum ódýrari en langflestir keppinautar okkar.
- Fjölbreytt menntun, víðtæk reynsla og þekking tryggir gæðin.
- Við leggjum ofuráherslu á að vefsíðan henti þér eða þínu fyrirtæki og sé í samræmi við ímynd og ásjónu fyrirtækisins eða þess aðila sem vefsíðan á að koma á framfæri.
- Við hönnum útlit síðunnar í samræmi við óskir viðskiptavina og notum ekki stöðluð útlit sem þýðir að engar tvær vefsíður frá okkur eru eins
- Við sjáum til þess að vefsíðan sé leitarvélavæn og rukkum ekki krónu fyrir öfluga leitarvélarbestun fyrir þær síður sem við hönnum ólíkt mörgum öðrum fyrirtækjum.
LÁTTU EKKI PLATA ÞIG!
Það má vera að þú finnir ódýrari vefsíðugerð en hjá okkur en þegar allt er tekið með í reikninginn þá getum við hreinlega lofað því að þú fáir ekki betri kjör en hjá Gullnet.is Hér eru ástæðurnar:
- Við bindum engan í rándýra hýsingu. Nokkrir “ódýrir” aðilar binda viðskiptavini sína í amk. árs hýsingu á óeðlilega háum mánaðargjöldum. Við beinum okkar viðskiptavinum til 1984.is þar sem er einhver ódýrasta hýsing sem í boði er hér á landi og mjög góð þjónusta. Við semsagt bjóðum ekki upp á hýsingu, heldur einbeitum okkur að því sem við erum bestir í þ.e. vefsíðugerð!
- ALLAR vefsíður frá okkur eru sérhannaðar! – Margir vefsíðugerðaraðilar bjóða annarsvegar upp á það sem þeir kalla “staðlaða ” vefsíðu og hinsvegar sérhannaða vefsíðu. Stöðluð vefsíða þýðir einfaldlega að þú ræður útlitinu að mjög takmörkuðu leyti. Sérhönnuð síða er svo miklu dýrari hjá þessum aðilum. Við hönnum útlitið eftir því sem við verður komið samkvæmt þínum óskum s.s. liti, breidd síðu, stærð headers, mynd í header, útlit hliðardálka ofl.
- ATHUGAÐU VEL HVAÐ ER INNIFALIÐ Í VERÐINU - Flestir aðilar miða verðtilboð við ákveðinn fjölda undirsíðna og magn af efni/myndum á þeim. það gerum við einnig. Margir aðilar rukka sérstaklega fyrir ýmsar viðbætur sem okkur þykir sjálfsagt að fylgi með vefsíðugerðinni án aukagjalds. þar má nefna stillingar fyrir leitarvélabesturn, favicon, fyrirspurnarform og facebook tengingar. Sjá nánar um viðbótarmöguleika hér.
