ÚTLITSÞEMA

Get the Flash Player to see the slideshow.

Hvernig er góð vefsíða ?

Gæði vefsíðna eru afskaplega misjöfn og því miður alltof mikið af illa gerðum vefsíðum á netinu.  Góð vefsíða þarf í grunninn að vera:

  • Fagmannlega unnin útlitslega – ekki of mikið um  flash og helst engin sjálfvirk hljóð.  Góð samhæfing milli útlits og innihalds þarf að vera til staðar.
  • Vefsíðan verður að henta viðfangsefninu og vera í stíl við ímynd og ásjónu fyrirtækisins, félagsins, vörunnar, þjónustunnar  eða þess efnis sem vefsíðunni er ætlað að kynna.
  • Vel kóðuð og gæta þess vel að allir linkar virki rétt.
  • Texti læsilegur, skýr og skilmerkilegur og síðast en ekki síst laus við stafsetningarvillur.
  • Myndir góðar og í réttum stærðum, ekki of mikill pixlafjöldi því það hægir á síðunni.
  • Leitarvélavæn- í því felst m.a. ekki of mikið flash, leitarorð á réttum stöðum, skráð á allar helstu leitarvélar, alt texti við myndir.  Nánari upplýsingar um leitarvélabestun eru hér.
  • Sá sem kemur á síðuna á að átta sig strax á því um hvað vefsíðan er.
  • Notandi á að átta sig fljótt á uppbyggingu og leiðakerfi síðunnar.

Vefsíðugerð

GULLNET.IS

Veldu traustan aðila til að sjá um þína vefsíðu. Gullnet.is - þar sem gæði, góð þjónusta og gott verð fara saman.